
Arctica Finance hafði umsjón með sölu á skuldabréfum útgefnum af Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf; UR 291116, ásamt því að annast töku þeirra til viðskipta, innheimtu og uppgjör í tengslum við útgáfuna.
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. seldi 3.540 milljónir króna að nafnverði en bréfið er á fljótandi vöxtum, 1M REIBOR auk 1,30% vaxtaálags. Flokkurinn greiðist með einni afborgun á lokagjalddaga sem er 16. nóvember 2029.
Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og eru gefin út undir útgáfuramma félagsins.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudagur, 16. nóvember 2026.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a-,b-, c- og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sem innleidd var með lögum nr. 14/2020.
„Við hjá ÚR erum sem fyrr þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna félaginu. Það er ljóst að innlendur fjármálamarkaður hefur trú á fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi.”
Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is