Fyrirtækja­ráðgjöf

Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance veitir stórum sem smáum fyrirtækjum, stofnunum, samtökum, opinberum aðilum og einstaklingum margvíslega þjónustu tengda fjármálamörkuðum, bæði hérlendis og erlendis

Þjónusta fyrirtækjaráðgjafar felst einkum í því að veita aðstoð og ráðgjöf á eftirtöldum sviðum:

  • Kaup og sala fyrirtækja
  • Samrunar og yfirtökur og aðrar eignarhaldstengdar breytingar
  • Nýskráningar og afskráningar fjármálagerninga
  • Fjármögnun og útboð fjármálagerninga
  • Fjárhagsleg endurskipulagning
  • Stefnumótun eignarhalds og reksturs

Starfsfólk fyrirtækjaráðgjafar Arctica Finance hafa víðtæka og áralanga reynslu af ráðgjöf af því tagi er félagið býður upp á, bæði hérlendis og erlendis, og hafa komið að mörgum af stærstu viðskiptum sem átt hafa sér stað á Íslandi síðustu ár.

Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance er óháð og hlutlaus. Arctica Finance hefur ekki með höndum útlánastarfsemi og sérfræðingar fyrirtækjaráðgjafar eru því óháðir í greiningu, mati og vali á fjárfestingum og fjármögnunarkostum sem skila sér í faglegri þjónustu viðskiptavinum til hagsbóta.

Kaup og sala fyrirtækja
Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance veitir ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja eða rekstrareininga. Þjónustan er gjarnan verkstjórn á slíku ferli, greining tækifæra, virðismat, greining virðisaukandi þátta, ráðgjöf um aðferðafræði, umsjón með samningaviðræðum, fjármögnun og lúkning viðskipta.

Þegar leitað er að fyrirtækjum eða rekstrareiningum til kaups, felst þjónusta Arctica Finance m.a. í að velja álitleg félög, kanna hvort viðkomandi félög séu til sölu og veita ráðgjöf við kaup og fjármögnun þeirra.

Arctica Finance veitir margvíslega ráðgjöf er kemur að sölu á fyrirtækjum eða rekstrareiningum. Starfað er í nánu samstarfi við seljanda við að þróa söluáætlun, finna rétta kaupandann og fá hagstæðustu kjörin. Skilningur er á því að hver seljandi hefur sínar hugmyndir og markmið við sölu og er veitt aðstoð og ráðgjöf við að ná þeim markmiðum.
Samrunar, yfirtökur og aðrar eignarhaldstengdar breytingar
Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance veitir aðstoð og ráðgjöf við mótun samruna- og yfirtökuáætlana, verkstýrir slíku ferli og annast þá m.a. greiningu tækifæra, virðismat, greiningu virðisaukandi þátta, ráðgjöf varðandi aðferðafræði, umsjón með samningaviðræðum og lúkningu viðskipta. Fyrirtækjaráðgjöf hefur umsjón með framkvæmd yfirtökutilboða í hlutabréf skráðra fyrirtækja, innlausna og afskráninga hlutabréfa í kauphöll og veitir aðstoð við skuldsettar yfirtökur.
Nýskráningar og afskráningar fjármálagerninga
Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance veitir aðstoð og ráðgjöf við mótun samruna- og yfirtökuáætlana, verkstýrir slíku ferli og annast þá m.a. greiningu tækifæra, virðismat, greiningu virðisaukandi þátta, ráðgjöf varðandi aðferðafræði, umsjón með samningaviðræðum og lúkningu viðskipta. Fyrirtækjaráðgjöf hefur einnig umsjón með framkvæmd yfirtökutilboða í hlutabréf skráðra fyrirtækja, innlausna og afskráninga hlutabréfa í kauphöll og veitir aðstoð við skuldsettar yfirtökur.

Arctica Finance er viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser) og hefur heimild til þess að hafa milligöngu um skráningu á First North markaðnum. First North markaðurinn er sniðinn að þörfum vaxtarfyrirtækja sem eru að taka sín fyrstu skref á verðbréfamarkaði.
Fjármögnun og útboð fjármálagerninga
Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance greinir hvers konar fjármögnunarkostir henta viðskiptavinum best. Mikil verðmæti geta falist í því að fyrirtæki sé rétt fjármagnað út frá áhættu, tímalengd og skilmálum fjármögnunarinnar. Þjónusta í tengslum við fjármögnun felst m.a. í greiningu á núverandi fjármagnsskipan og tillögum að kjörfjármagnsskipan, gerð kynninga fyrir vænta lántakendur, greiningu á fjármögnunartilboðum frá lánveitendum, aðstoð við samningaviðræður, ráðgjöf við hugsanlega hlutafjáraukningu og í tengslum við fjármögnun skuldsettrar yfirtöku. Öflun fjármagns getur farið fram með almennum og lokuðum útboðum verðbréfa.

Þjónusta af þessu tagi felst meðal annars í:
  • Að greina stöðu útgefanda
  • Að veita ráðgjöf um fjármögnun
  • Að eiga samskipti við fjárfesta
  • Að annast gerð kynninga
  • Að hafa umsjón með gerð lýsinga
  • Að hafa umsjón með skráningu verðbréfa í kauphöll
  • Að hafa umsjón með útgáfu verðbréfa í verðbréfamiðstöð (rafræn útgáfa)
  • Að veita ráðgjöf um og hafa umsjón með lokaðri sölu/útboði verðbréfa
Fjárhagsleg endurskipulagning

Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance veitir fyrirtækjum hagnýta ráðgjöf um fjárhagslega endurskipulagningu. Þjónustan getur falist í:
  • Að veita ráðgjöf um fjárhagslega uppbyggingu
  • Að koma með tillögur um hugsanlegar leiðir til endurfjármögnunar
  • Að meta rekstraráætlanir ásamt því að meta áætlaða fjárfestingarþörf, með tilliti til möguleika á að greiða afborganir og vexti vaxtaberandi skulda, aðrar skuldbindingar og arð til hluthafa
  • Að setja fram tillögur varðandi breytingar á fjármagnsskipan, t.d. varðandi breytta skilmála skulda, umbreytingu skulda í hlutafé eða útgáfu nýrra hluta. Markmið slíkra tillagna er jafnan að samræma endurgreiðsluferil lána væntu fjárstreymi frá rekstri
  • Að útbúa kynningargögn fyrir lánveitendur og/eða fjárfesta
  • Að annast viðræður við kröfuhafa sem og mögulega nýja lánveitendur og/eða fjárfesta
  • Að aðstoða við gerð tilboða, endanlegra samninga og annarra löggerninga
Stefnumótun eignarhalds og reksturs
Hluthafar og lánveitendur íhuga stöðugt valkosti sína varðandi að hámarka verðmæti eigna sinna. Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance býður upp á greiningu á tiltækum valkostum hvað varðar hámörkun verðmæta. Hagsmunaaðilar vilja til dæmis átta sig á hvenær sé hentugur tími til að losa eignarhald, hvort og hvenær fyrirtæki ættu að selja einstakar rekstrareiningar eða hvort þau ættu þvert á móti að stækka rekstrareiningar með yfirtökum.

Starfsfólk á sviði fyrirtækjaráðgjafar

JonThorSigurvinsson

Jón Þór Sigurvinsson

Forstöðumaður

Jón Þór er forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar og einn af stofnendum Arctica Finance. Jón Þór vann í fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans í tvö ár frá 2007-2008. Áður vann Jón Þór hjá fjárfestingafélaginu Straumborg, þar sem hann bar ábyrgð á fjárfestingum félagsins í orkugeiranum ásamt því að sjá um veltubók. Frá 2005-2007 sat Jón Þór í stjórn tveggja olíuleitarfyrirtækja. Frá 2004-2005 vann Jón Þór hjá Kjarnorkurannsóknarstofnun Frakklands, CEA. Jón Þór er með MSc-gráðu í orkuverkfræði frá Université Joseph Fourier í Frakklandi, BSc-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og BSc-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands, auk löggildingar í verðbréfamiðlun.
AndriIngason

Andri Ingason

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Andri Ingason er sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Hann hóf störf hjá Arctica Finance árið 2018 og hefur síðan þá tekið þátt í mörgum af stærstu verkefnum fyrirtækjaráðgjafar, þar á meðal skráningum á markað, kaupum eða sölu fyrirtækja og fjármögnun þeirra. Áður en Andri gekk til liðs við Arctica Finance starfaði hann á Einstaklingssviði Landsbankans. Andri lauk BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018, BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021 og hefur hann jafnframt öðlast verðbréfaréttindi.
BirtaMariaBirnisdottir

Birta María Birnisdóttir

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Birta starfaði hjá Sjóvá samhliða námi undanfarin ár og var í starfsnámi hjá fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance. Birta hóf störf árið 2023 eftir að hafa útskrifast með BSc-gráðu í hagfræði með áherslu á fjármál frá Háskólanum í Reykjavík.
DagurAndrason

Dagur Andrason

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Dagur hóf störf í upphafi sumars 2023 eftir að hafa útskrifast með BSc-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Áður starfaði hann samhliða námi á útlánasviði Arion banka og fyrir það hjá hugmyndahúsinu Grósku þar sem hann sinnti hinum ýmsu verkefnum tengdum rekstri og fjármögnun.
GretarBrynjolfsson

Grétar Brynjólfsson

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Áður starfaði Grétar hjá fyrirtækjaráðgjöf GAMMA Capital Management og þar áður hjá fyrirtækjasviði PwC. Grétar er með meistaragráðu í fjármálum frá Háskólanum í Lundi og BSc-gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Grétar hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
GunnarJohannesson

Gunnar Jóhannesson

Verkefnastjóri, sérfræðingur og stofnandi Arctica Finance

Gunnar hóf störf í fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans árið 2004, en áður starfaði hann sem rekstrarráðgjafi og meðeigandi hjá IMG og Deloitte. Gunnar hefur komið að fjölda verkefna í tengslum við kaup og sölu fyrirtækja. Hann er með BSc-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet, auk löggildingar í verðbréfamiðlun.
HildurSveinsbjornsdottir

Hildur Sveinbjörnsdóttir

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Hildur hóf störf árið 2022. Hún starfaði áður hjá fyrirtækjaráðgjöf EY frá árinu 2017. Hildur er með BSc-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Fin.-gráðu frá sama skóla.
IndridiSigurdsson

Indriði Sigurðsson

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Indriði Sigurðsson hóf störf hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance árið 2015 eftir 16 ára atvinnumannaferil í knattspyrnu í Noregi og Belgíu. Hann er með B.S.-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá Høgskolen i Sørøst – Norge og stundar einnig MBA-nám samhliða vinnu með áherslu á fjármál við Heriot-Watt University, Edinburgh Business School. Þá hefur hann jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
RutKristjansdottir

Rut Kristjánsdóttir

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Rut hóf störf árið 2021 en hún hefur starfað í fjármálageiranum frá árinu 2017. Rut starfaði í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka árin 2019-2021 þar sem hún kom m.a. að mótun ábyrgra fjárfestinga innan eignastýringar bankans. Þar áður starfaði Rut hjá fjármálaráðgjöf Deloitte árin 2017-2019 þar sem hún vann m.a. að áreiðanleikakönnun á mörgum af stærstu félögum á íslenskum markaði. Rut er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
ThorbergurGudjonsson

Þórbergur Guðjónsson

Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf

Þórbergur Guðjónsson hóf störf hjá fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance í ágúst 2023. Áður hafði Þórbergur starfað hjá fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og Kaupþings banka í 16 ár, eða frá árinu 2007. Þar kom Þórbergur að flestum skráningum á markað á vegum bankans auk annarra verkefna sem snúa að kaupum eða sölu fyrirtækja sem og fjármögnun þeirra. Á árunum 2003-2006 starfaði Þórbergur hjá Sparisjóði Mýrasýslu við ýmis verkefni er sneru að lánamálum og fjármögnun. Þórbergur er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og MSc-gráðu í fjármálum og fjárfestingum frá University of Edinburgh. Jafnframt hefur Þórbergur lokið CFA-prófi sem og prófi í verðbréfaviðskiptum.