11.3.2026

Arctica Finance umsjónaraðili skuldabréfaútgáfu ISNIC Holding ehf.

Arctica Finance hafði umsjón með sölu á nýjum skuldabréfaflokki útgefnum af ISNIC Holding ehf; ISNIC 280320. ISNIC Holding ehf. sem er móðurfélag Internets á Íslandi hf. seldi skuldabréf að nafnvirði kr. 1.500.000.000. Skuldabréfin bera 1 mánaðar REIBOR vexti með 1,60% álagi og verða endurgreidd með einni afborgun á lokagjalddaga sem er 20. mars 2028. Skuldabréfin verða rafrænt útgefin og í kjölfarið mun félagið óska eftir að þau verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Auk Arctica Finance veitti BBA//Fjeldco ráðgjöf í tengslum við útgáfuna.

Nánari upplýsingar veita:

Sverrir Bergsteinsson, sverrirb@arctica.is

Magnús Símonarson, magnuss@arctica.is

❮ til baka