15.4.2026

Arctica Finance ráðgjafi Bioeffect í USD 2,5 milljóna hlutafjárútboði til Quantifi

Á síðari hluta árs 2025 lauk Bioeffect hf., íslenskur húðvöruframleiðandi, hlutafjáraukningu að fjárhæð 2,5 milljónir Bandaríkjadala með þátttöku erlenda fjárfestingahópsins TEG Commerce LLC (Quantifi), sem kom nýr inn í hluthafahóp félagsins. Sérþekking Quantifi hópsins mun nýtast félaginu til frekari sóknar í Bandaríkjum, þá einkum á Amazon sem og í netsölu. Fulltrúi á vegum fjárfestingahópsins hefur sest í stjórn félagsins samhliða fjárfestingunni.

Bioeffect hf. þróar, framleiðir og selur íslenskar húðvörur sem byggja á íslensku hugviti. Virku efnin í húðvörulínum félagsins, vaxtarþættir, eru framleidd með aðferðum plöntulíftækni og er EGF (Epidermal growth factor) þekktasti vaxtarþátturinn.

„Það er mikill styrkur fyrir félagið að fá Quantifi í hluthafahópinn þar sem sérþekking þess mun nýtast til frekari sóknar í Bandaríkjunum, með áherslu á Amazon og netsölu. Samhliða fjárfestingu þeirra kom Karim Abbas nýr inn í stjórn félagsins“ segir í tilkynningu Bioeffect.

Arctica Finance var ráðgjafi Bioeffect í tengslum við hlutafjáraukninguna.

❮ til baka