
Kaupin marka stærsta einstaka skrefið til þessa í alþjóðlegri uppbyggingu Travel Connect og styrkja verulega stöðu samstæðunnar á norrænum og evrópskum mörkuðum. Það er skýr stefna Travel Connect að auka vægi erlendrar starfsemi innan samstæðunnar og nýta þau tækifæri sem skapast til frekari vaxtar á erlendum mörkuðum.
Félög innan Travel Connect samstæðunnar selja í dag ferðir til um 20 áfangastaða og reka skrifstofur í Skotlandi, Svíþjóð, Þýskalandi og á Ítalíu. Haman Group er fjórða ferðaþjónustufyrirtækið sem Travel Connect kaupir á síðastliðnum sex árum. Fyrri kaup og sameiningar hafa gengið vel og sú reynsla verður mikilvæg þegar Haman Group verður hluti af samstæðunni.
Haman Group sérhæfir sig í fjölbreyttu úrvali ferða um Norðurlönd og Evrópu. Undir stjórn Anette Karlsson, sem hefur leitt félagið í meira en 20 ár, hefur Haman Group byggt upp sterka stöðu á sínum mörkuðum, langvarandi viðskiptasambönd og víðtækt net samstarfsaðila. Félagið býr jafnframt að öflugu og reynslumiklu starfsfólki sem hefur átt stóran þátt í uppbyggingu og árangri þess.
„Haman Group fellur afar vel að starfsemi og framtíðarsýn Travel Connect. Félagið hefur byggt upp öflugan rekstur, sterka stöðu og mikilvæg viðskiptasambönd á mörkuðum sem eru mikilvægir fyrir áframhaldandi vöxt Travel Connect. Við erum ekki síður spennt að bjóða öflugt og reynslumikið starfsfólk Haman Group velkomið í hópinn.“
„Með kaupunum sjáum við mikil tækifæri til að breikka vöruframboð, nýta þekkingu og innviði félaganna betur og skapa frekari tækifæri á erlendum mörkuðum. Vöxtur í íslenskri ferðaþjónustu hefur hægt á sér undanfarin ár. Við ætlum áfram að byggja upp sterka starfsemi á Íslandi en sjáum jafnframt að stór hluti framtíðarvaxtar Travel Connect mun koma frá erlendum mörkuðum.“
„Það markar spennandi nýjan kafla fyrir Haman Group að ganga til liðs við Travel Connect. Við erum afar stolt af því fyrirtæki, þeim viðskiptasamböndum og því sterka teymi sem við höfum byggt upp á síðustu 20 árum. Við sjáum mikil tækifæri í því að verða hluti af stærri alþjóðlegri samstæðu og hlökkum til að þróa Haman Group áfram og skapa ný tækifæri fyrir starfsfólk okkar, viðskiptavini og samstarfsaðila.“

Arctica Finance og LLG Lögmenn voru ráðgjafar Travel Connect við kaupin, en Svalner Atlas var ráðgjafi seljanda.