
Íslenska erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics (ATx) hefur tryggt sér 21,5 milljóna dala fjármögnun, sem samsvarar rúmlega 2,5 milljörðum íslenskra króna. Umframeftirspurn var eftir þátttöku í útboðinu sem lauk nú nýverið.
Bæði nýir og núverandi hluthafar tóku þátt í fjármögnuninni sem var leidd af fjárfestingarfélaginu Pekron, danska heilbrigðis- og rannsóknarþjónustufyrirtækinu Sanos Group, fjárfestingarfélaginu Kaldbaki og framtakssjóðnum Landvættum, sem er í stýringu AxUM Securities.
Fjármagnið verður nýtt til þess að hraða þróun lyfjanna AT-002 og AT-003 í átt að klínískum rannsóknum. Jafnframt mun félagið áfram byggja á þeim árangri sem náðst hefur með leiðandi þróunarverkefnum sínum, AT-001 og AT-004, sem bæði hafa náð mikilvægum áföngum í klínískri þróun á síðustu tveimur árum
ATx var stofnað af Dr. Hákoni Hákonarsyni, lækni og sérfræðingi í lungna- og genarannsóknum við Center of Applied Genomics (CAG) í Bandaríkjunum, og syni hans Ívari Hákonarsyni. Fyrirtækið er með fjölbreytt lyf í þróun á sviði taugasjúkdóma, sjálfsofnæmissjúkdóma og bólgusjúkdóma í húð. Starfsemi félagsins byggir á að umbreyta erfðafræðilegum uppgötvunum í nýjar meðferðir fyrir sjúklinga með alvarlega sjúkdóma og starfar félagið með rannsóknar- og klínískum samstarfsaðilum víða um Evrópu og Bandaríkin.
Arctica Finance hafði umsjón með fjármögnunarferlinu fyrir hönd Arctic Therapeutics en BBA//Fjeldco veitti félaginu lögfræðiráðgjöf.