22.10.2026

Arctica Finance ráðgjafi við 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu Aurora Abalone

‍

Aurora Abalone hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu. Fjármagnið verður nýtt til að styðja við stærsta uppbyggingaráfanga í sögu félagsins, sem felst í að byggja upp 100 tonna árlega framleiðslu á abalónum. Abalónur teljast til sælkeraafurða sem eru eftirsóttar hjá fremstu matreiðslumönnum heims.

Aurora Abalone byggir á áratugalöngu rannsóknar- og þróunarstarfi sem nú er stefnt að skili hágæða afurðum á kröfuharða markaði erlendis. Félagið rekur hlýsjávarlandeldi í Grindavík og í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi, þar sem eigið eldiskerfi félagsins, SustainCycle™, nýtir sérstöðu Íslands: kaldan, hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með jarðvarma.

Aurora Abalone er eina abalónueldi Íslands og ræktar Ezo-abalónur (Haliotis discus hannai), sem eru í hávegum hafðar í japanskri matargerð, í landeldi í Grindavík og á Reykjanesi. Eldisstofn félagsins hefur verið byggður upp í áratugi úr japönskum stofnum frá Hokkaido, Iwate og Miyagi. Eldið nýtir hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með affallssjó frá jarðvarmavirkjun. Félagið undirbýr nú nýja eldisstöð í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi sem verður sú stærsta í Evrópu og er að byggja upp markaðssetur afurð sinna  í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.

Hlutafjáraukningin var leidd af Dorg, Eyri, ReykVC, Kili fjárfestingarfélagi og Trøndelag Helgeland Invest ásamt einkafjárfestum

Arctica Finance hafði umsjón með fjármögnunarferlinu fyrir hönd Aurora Abalone en BBA//Fjeldco veitti félaginu lögfræðiráðgjöf.

❮ til baka