IS Haf fjárfestingar slhf. í samstarf við Thor Landeldi ehf.
IS Haf fjárfestingar hafa undirritað samning um fjárfestingu í Thor Landeldi ehf., en félagið áformar uppbyggingu á 20.000 tonna laxeldi í Þorlákshöfn. Um er að ræða þátttöku sjóðsins í hlutafjáraukningu, sem færir sjóðum 53% hlut í félaginu. Auk IS Hafs fjárfestinga munu norsku fjárfestarnir Frank Yri aðstoðarframkvæmdastjóri Seaborn og Alex Vassbotten, sem m.a. er stjórnarformaður Seaborn, fjárfesta í félaginu en Seaborn er norskt sölufyrirtæki á laxi. Báðir hafa umtalsverða reynslu úr laxeldi og fjárfestingastarfsemi tengdri laxeldi.
Félagið hefur tryggt sér 20,3 hektara lóð við Laxabraut 35-41 vestan við Þorlákshöfn. Staðsetningin er afar heppileg fyrir eldi þar sem svæðið er auðugt af fersku vatni og jarðsjó sem þarf til framleiðslu á laxi á landi. Nýtt hlutafé í félaginu verður nýtt til að fjármagna fyrsta áfanga eldisins sem er uppbygging á seiðaeldisstöð. Verkefnið er í umhverfismatsferli og gangi áætlanir eftir er gert ráð fyrir að tekið verði á móti fyrstu hrognum í seiðaeldisstöðina haustið 2024.
Forsvarsmenn verkefnisins eru þeir Jónatan Þórðarson, Þórður Þórðarson og Halldór Ragnar Gíslason, sem allir hafa mikla reynslu á ýmsum sviðum fiskeldis. Jónatan er fiskeldisfræðingur með yfir 20 ára reynslu af rekstri og uppbyggingu fiskeldisstöðva og var yfirmaður eldismála hjá Ice Fish Farm 2012-2022. Þórður starfaði áður m.a. sem lögmaður og framkvæmdastjóri hjá Fiskeldi Austfjarða hf. 2012-2023 en þeir Jónatan voru meðal stofnenda Fiskeldis Austfjarða hf. Halldór er sjávarútvegsfræðingur með M.Sc. gráðu í fiskeldi frá Skotlandi og starfaði síðast í sjávarútvegsteymi á fyrirtækjasviði Arion banka.
Ráðgjafi seljenda var Arctica Finance og var Deloitte ráðgjafi IS Haf fjárfestinga.
IS Haf fjárfestingar slhf. er sjóður sem stofnaður var í febrúar 2023 og er í rekstri Íslandssjóða hf. Sjóðurinn sem er 10 milljarðar að stærð fjárfestir í haftengdri starfsemi á breiðum grunni, allt frá útgerðum og fiskeldi yfir í hátækni, innviðauppbyggingu, markaðssetningu og sjávarlíftækni. Stærstu fjárfestarnir í sjóðnum eru íslenskir lífeyrissjóðir ásamt Brim hf. og Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. sem er kjölfestufjárfestir í sjóðnum. Í krafti meðfjárfestinga hluthafa og annarra fjárfesta er áætlað að fjárfestingageta IS Haf verði á bilinu 30 til 50 milljarðar. Ráðgjafasamningur er í gildi á milli Íslandssjóða og Útgerðarfélags Reykjavíkur sem í sameiningu vinna að öflun og greiningu fjárfestingatækifæra.
„Hröð uppbygging laxeldis á Íslandi krefst öflugrar aðkomu fjárfesta við hlið aðila með reynslu úr greininni. Mikil þörf er á að styrkja innviði laxeldis til að halda í við vöxtinn og er framleiðsla á seiðum grunnforsenda fyrir farsælum vexti bæði sjókvíaeldis og landeldis. Með fjárfestingu IS Haf í Thor Landeldi ehf. er hafin vegferð sem mun þjóna lykilhlutverki í uppbyggingu nýlegrar atvinnugreinar í miklum vexti.“
„Með samstarfi ÍS Haf með reynslumestu eldismönnum Íslands erum við að skapa umgjörð til þess að hámarka líkur á arðbærri fjárfestingu í þessum nýja atvinnuvegi okkar Íslendinga.“
„Fyrirsvarsmenn Thor Landeldi ehf. fagna aðkomu IS Haf að uppbyggingu félagsins, en með henni er brautin rudd fyrir metnaðarfull áform félagsins um uppbyggingu á stórskala landeldi á laxi. Landeldi á laxfiskum er einn náttúruvænasti kosturinn til framleiðslu hágæðapróteins sem völ er á í dag. Mikil reynsla er nú þegar komin hérlendis á landeldi og er því um að ræða mjög áhugaverðan fjárfestingarkost.“